Arnarholt í Stafholtstungum er bújörð í Borgarfjarðarhéraði.  Fram til 1994 var þar stundaður hefðbundinn búskapur, en jörðin, er nú í eigu 16 fjölskyldna, sem stunda þar skógrækt, byggingu sumarhúsa og almenna útivist.  Á myndinni hér að ofan sést íbúðarhúsið ásamt útihúsum.  Jörðin er í næsta nágrenni þéttbýliskjarnans Varmalands og liggur að hluta til að Norðurá.  Vinstra megin á myndinni hér að ofan sér í þjóðveg 50, Borgarfjarðarbraut.  Arnarholt tilheyrði áður fyrr Stafholtstungnahreppi, sem nú er hluti sveitarfélagsins Borgarbyggðar.

Nokkur hluti þessa vefs er opinn öllum almenningi, en aðrir hlutar hans eru aðeins sýnilegir eftir innskráningu með lykilorði.

Fréttir

22.01.2012
Stjórnarfundur var haldinn 19.01.2012.  Fundargerð hefur verið vistuð í vefskjalasafni félagsins.

01.10.2011
Skjalasafninu hefur borist yfirlit frá Brynjólfi Guðmundssyni um laxveiði í Norðurá 2001-2011.

29.09.2011
Tveimur skjölum bætt við skjalasafnið undir flokknum Norðurá:
1. Veiðiskýrsla fyrir 2011.
2. Álitsgerð lögmannsstofu um atkvæðisrétt jarða.

20.09.2011
Haustblót var haldið helgina 17.-18.09.2011.  Skrifuð var stutt lýsing á því helsta sem gerðist og vistuð í skjalasafni sem Annáll haustblóts Arnhyltinga 2011 undir Önnur skjöl.

05.09.2011
Stjórnarfundur var haldinn 02.09.2011 og hefur fundargerðin verið vistuð í skjalasafni okkar.

12.08.2011
Nokkur skaði hefur orðið á furu og greni á ræktunarsetri 20.  Um þetta er fjallað á myndasíðu.

Eldri fréttir...


Site Map | Printable View | © 2008 - 2012 Tölvar ehf | Powered by mojoPortal | XHTML 1.0 | CSS | Design by styleshout