Arnarholt í Stafholtstungum er bújörð í Borgarfjarðarhéraði.  Fram til 1994 var þar stundaður hefðbundinn búskapur, en jörðin, er nú í eigu 16 fjölskyldna, sem stunda þar skógrækt, byggingu sumarhúsa og almenna útivist.  Á myndinni hér að ofan sést íbúðarhúsið ásamt útihúsum.  Jörðin er í næsta nágrenni þétt- býliskjarnans Varmalands og liggur að hluta til að Norð- urá.  Vinstra megin á myndinni hér að ofan sér í þjóðveg 50, Borgarfjarðarbraut.  Arnarholt tilheyrði áður fyrr Stafholts- tungnahreppi, sem nú er hluti sveitarfélagsins Borgarbyggðar.

Nokkur hluti þessa vefs er opinn öllum almenningi, en aðrir hlutar hans eru aðeins sýnilegir eftir innskráningu með lykilorði.

Fréttir

28.06.2010
Aðalfundur Hitaveitu Stafholtstungna var haldinn 10. júní sl.  Þrjú skjöl varðandi hitaveituna og fundinn hafa verið vistuð í gagnasafni Arnarholts á vefnum undir Skjalasafn/Önnur skjöl.

12.05.2010
Fundargerð stjórnarfundar 11. maí vistuð í skjalasafni.  Einnig vistað í skjalasafni undir Önnur skjöl minnisblað Arnlaugs Guðmundssonar frá fundi veiðiréttareigenda á neðra svæði Norðurár hinn 24. apríl sl.

16.04.2010
Fundargerð stjórnarfunar 8.apríl og rekstraryfirlit fyrsta ársfjórðungs 2010 vistað í skjalasafni

02.04.2010
Bréf Hlöðutúns til Arnhyltinga skannað og vistað í skjalasafni undir Skjalasafn/Önnur skjöl.

22.03.2010
Ársskýrsla 2009 tilbúin og sett í fjölföldun.  Einnig vistuð sem pdf skjal hér á vefnum undir Skjala- safn/Önnur skjöl.  Minnt er á ársfundinn 24. mars hjá Verkís hf að Suðurlandsbraut 4.

Eldri fréttir...


Site Map | Printable View | © 2008 - 2010 Tölvar ehf | Powered by mojoPortal | XHTML 1.0 | CSS | Design by styleshout