Arnarholt í Stafholtstungum er bújörð í Borgarfjarðarhéraði.  Fram til 1994 var þar stundaður hefðbundinn búskapur, en jörðin, er nú í eigu 16 fjölskyldna, sem stunda þar skógrækt, byggingu sumarhúsa og almenna útivist.  Á myndinni hér að ofan sést íbúðarhúsið ásamt útihúsum.  Jörðin er í næsta nágrenni þétt- býliskjarnans Varmalands og liggur að hluta til að Norð- urá.  Vinstra megin á myndinni hér að ofan sér í þjóðveg 50, Borgarfjarðarbraut.  Arnarholt tilheyrði áður fyrr Stafholts- tungnahreppi, sem nú er hluti sveitarfélagsins Borgarbyggðar.

Nokkur hluti þessa vefs er opinn öllum almenningi, en aðrir hlutar hans eru aðeins sýnilegir eftir innskráningu með lykilorði.

Fréttir

28.02.2010
Bætt við myndasíðum Arnlaugs og Bjarna.  Skráð æviágrip Guð- mundar Pálssonar sýslumanns í Arnarholti(Úr fylgsnum fortíðar).

09.02.2010
Skrár frá Laufeyju um gróður- setningu í sameign 1998-2008 vistaðar í nýrri möppu sem heitir Gróðursetning í sameign.  Frá Arnlaugi komu tvær skýrslur Veiðimálastofnunar, sameinaðar í eitt pdf-skjal og vistað í möppu Önnur skjöl.  Sjá: skjalasafn.

31.01.2010
Skráð æviágrip Sigurðar Þórðar- sonar sýslumanns í Arnarholti (Úr fylgsnum fortíðar)

Eldri fréttir...


Site Map | Printable View | © 2008 - 2010 Tölvar ehf | Powered by mojoPortal | XHTML 1.0 | CSS | Design by styleshout